8.10.2006 | 08:03
Ammli
7. oktÍ dag er merkilegu dagur. Það eru komin heil 31 ár síðan ég fæddist. Ætli ég verði ekki að óska mömmu og pabba til hamingju með það afrek. Þau eru líklega þau sem muna best eftir þessum degi og amma kanski líka því þá varð hún amma í fyrsta skipti. Allavega finnst mér ég ekki vera deginum eldri en 17 ára- er það ekki þannig sem það á að vera, er maður nokkuð eldri en manni finns maður vera? Í dag hefði Helga Sigurbjörg móðuramma mín orðið 82 ára hefði hún lifað en hún lést langt um aldur fram 4. des 1965 þannig að ég fékk því miður aldrei að kynnast henni. En mér þykir vænt um að bera nafnið hennar og að eiga sama afmælisdag og hún. Fyrir sex árum síðan, á 25 ára afmælisdaginn minn var líka dásamlegur dagur, nefnilega brúðkaupsdagurinn okkar Kristjáns og ári seinna, eða fyrir fimm árum síðan áttum við annan góðan dag í kirkjunni okkar, Hallgrímskirkju, þegar Margrét Helga okkar var skírð. Þannig að þið sjáið að þetta er ekki lítið sérstakur dagur fyrir okkur. Við borðuðum góðan morgunmat í morgun og ég opnaði nokkra pakka sem ég fékk frá Íslandi. Takk fyrir mig! Í kvöld ætlum við hjónin svo út að borða bara tvö. Asnakú kemur og passar krakkana. Ég ætlaði að hafa stelpupartý í gærkvöld en komst að því að allir voru meira eða minna út úr bænum þar sem nú er haustfrí í norska skólanum. Ég er að hugsa um að hafa það í staðinn næstu helgi, þá verður Kristján heldur ekki í bænum. Hann er að fara með kirkjunni í svona Mens campout (tjaldferð fyrir karlana) til Langanó. Næsta laugardag er líka hið svokallaða Addis- hlaup ávegum norska skólans. Á hverju ári hlaupa krakkarnir og safna áheitum. Peningarnir fara svo í að hjálpa börnum hér í Eþíópíu sem eiga um sárt að binda. Í ár er safnað fyrir þremur verkefnum, Vefnaðarverkefni fyrir stúlkur, þar sem þær læra að vefa til að vinna sér inn peninga. Þetta verkefni er á vegum KFUK. Annað verkefnið er að hjálpa fólki sem býr í nágrenni skólans til að gera við húsin sín, kaupa ný þök eða laga gólfin. Mörg húsin eru illa farin eftir regntímann. Þriðja verkefnið fer er að styrkja börn sem hafa misst foreldra sína úr HIV/Aids (eyðni). Allir sem vilja heita á Margréti Helgu og Jóel geta gert það. Það er bæði hægt að heita ákveðinni upphæð á hvern hring (500m) sem þau ná að hlaupa, eða gefa fasta upphæð. Ég get gefið upp reikningsnúmerið þeim sem vilja með tölvupósti. Hlaupið hefst hér í garðinum okkar og verður hlaupinn 500m hringur hér á lóðinni. Það er alveg með ólíkindum hvað sum ná að hlaupa, allt upp í 20 hringi á einum og hálfum tíma. Það er mikill metnaður hjá krökkunum og ekki síst að slá út met sín frá fyrra ári. 8. oktVið áttum mjög huggulegt kvöld í gær. Borðuðum á voða fínum ítölskum stað sem reyndar tók okkur smá stund að finna en fundum hann að lokum og fengum góðan mat og góða þjónustu. Takk fyrir allar góðar kveðjur í tilefni gærdagsins!Kristján fór með tvö elstu í kirkju en við Dagbjartur Elí erum heima og undirbúum hangikjötsveislu. Kía og co ætla koma eftir kirkju og borða með okkur hangikjöt. Smá forskot á jólin! Þannig að nú þarf ég að fara að sjóða kartöflur og gera uppstú og svona....namminamm!
Um bloggið
Lífið í Eþíópíu
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með daginn í gær!!
kv.
Hildur Sveins
hildurs (IP-tala skráð) 8.10.2006 kl. 10:44
Innilega til hamingju með afmælis-, brúðkaupsafmælis- og skírnardaginn.
Bestu kveðjur,
Gunnar, Úlla og Sigrún litla frænka
Gunnar (IP-tala skráð) 8.10.2006 kl. 17:09
innilega til hamingju með þennan stóra dag :)
alltaf gaman að lesa síðuna ykkar.
hafið það gott.
anna.
anna (IP-tala skráð) 9.10.2006 kl. 09:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.